Hvað er Ad Astra ?

Nafnið er dregið af latneska málshættinum „Ad astra per aspera“, sem þýðir „til stjarnanna með erfiðleikum“, ekki ósvipað íslenska málshættinum „enginn verður óbarinn biskup“.
Ad Astra veitir bráðgerum og námsfúsum börnum á aldrinum 9-13 ára verkefni við hæfi sem eru sniðin að þörfum þeirra og áhuga. Starfsemi Ad Astra heldur margvíslegra námskeið þar sem börnum stendur til boða að læra undirstöðuatriði ákveðinnar námsgreinar í skapandi umhverfi undir handleiðslu háskólakennara ásamt öðrum börnum sem deila sama áhuga.
Námskeið Ad Astra eru ætluð grunnskólanemendum sem sækjast eftir áskorun í námi. Öll börn sem hafa áhuga á krefjandi viðbótarnámi eru velkomin á námskeiðin okkar. Engar sérstakar kröfur eru gerðar um námsárangur eða einkunnir.
Sumarnámskeið 2012
Ad Astra ehf. mun standa fyrir sumarnámskeiðum í júni sem eru ætluð börnum á aldrinum 9-13 ára. Námsúrvalið verður fjölbreytt að vanda og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Námskeiðin munu hefjast mánudaginn 11 júní og síðasti dagur námskeiða er föstudagurinn 29. júní.
Til boða stendur að kaupa eina viku, tvær vikur eða allar þrjár vikurnar. Hægt er að kaupa aðgang að bóklegum námskeiðum fyrir hádegi og aðgang að sumarnámskeiðum eftir hádegi. Skipulögð dagskrá verður frá kl. 09.00-16.00 á daginn (einnig er boðið upp á gæslu til 17.00)
Fylgist með á Adastra.is eða á www.facebook.com/adastraehf
Spurningar?
Hafðu samband við Guðrúnu Maríu Magnúsdóttur í sima 869 4240 eða í gegnum netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Hvers vegna Ad Astra námskeið?
Býr næsti Einstein á þínu heimili?
Langar þig að læra um allt milli himins og jarðar í hópi áhugasamra nemenda undir handleiðslu háskólakennara í skapandi og framsæknu háskólaumhverfi?
Þá gætu námskeið Ad Astra hentað þér og þínum
